Þrektímarnir

Þrektímarnir


Portfolio Description
  • 0
  • September 28, 2020

Morgunorka - Rólegur - Hádegistíminn - Föstudagsfjörið

Morgunorka eru hressandi og krefjandi tímar þar sem sköpunargleði þjálfarans fær að njóta sín. Frábær blanda af öllu því besta til að starta deginum.

Rólegur er mjúkur tími í volgum sal. Teygjur, styrkur og slökun.

Hádegistímarnir eru 50 mín og er tekið vel á því. Fátt betra en að brjóta upp vinnudaginn og henda sér í ræktina, kemur margfalt öflugri til baka.

Föstudagsfjörið verður í algleymingi á föstudögum. Hefjum helgina af gleði og keyrum upp steminguna. Föstudagstónlistin í tímunum svíkur engan!

Súperkeyrslan á miðvikudögum er þrektími í erfiðari kantinum.

Kennarar: Tryggvi, Birgitta, Hóffa, Karen Nóa, Natalía og Guðrún

Byrjaðu í dag!

Á Bjargi eru 3 hóptímasalir, rúmgóður tækjasalur, glæsilegt útisvæði með stórum palli til að æfa á, tveimur 10 manna heitum pottum, köldu kari og góðri sólbaðsaðstöðu.

Tvö búningsherbergi, 6 manna heitur pottur inni í fallegu umhverfi og einstaklega rúmgóð snyrtiaðstaða með blásurum og speglum allan hringinn.

Á efri hæðinni eru 3 salir. Heitur salur, þreksalur og spinningsalur. Einnig er teygjusvæðið uppi í enda salarins þar sem hægt er að gefa sér tíma í teygjur og slökun.