Æfing Dagsins

Æfing Dagsins


Portfolio Description
  • 0
  • January 25, 2017

Æfing Dagsins

Æfing dagsins er fjölbreytt og skemmtileg tilbreyting þar sem 3 mismunandi æfingar í hverri viku eru settar á töfluna í tækjasal. Æfinguna er hægt að skala eftir þörfum hvers og eins, t.d. mismunandi þyngdir og erfiðleikastig. Æfing dagsins hentar því öllum og tilvalið að taka nokkrar umferðir af henni. Æfing dagsins getur verið styrktar- eða þolæfing.

Þú getur alltaf fengið aðstoð frá þjálfara í sal til að fá leiðbeiningar, hvernig best er að beita líkamanum og vera fullviss um að þú sért að gera æfinguna rétt.

Byrjaðu í dag!

Á Bjargi eru 3 hóptímasalir, rúmgóður tækjasalur, glæsilegt útisvæði með stórum palli til að æfa á, tveimur 10 manna heitum pottum, köldu kari og góðri sólbaðsaðstöðu.

Tvö búningsherbergi, 6 manna heitur pottur inni í fallegu umhverfi og einstaklega rúmgóð snyrtiaðstaða með blásurum og speglum allan hringinn.

Á efri hæðinni eru 3 salir. Heitur salur, þreksalur og spinningsalur. Einnig er teygjusvæðið uppi í enda salarins þar sem hægt er að gefa sér tíma í teygjur og slökun.