Leikfimi fyrir 60 ára og eldri
Góð leikfimi sem hentar vel fólki 60 ára og eldri. Hæfilegt álag sem miðast að hverjum einstakling og góðar teygjur og slökun undir handleiðslu fagfólks. Margar rannsóknir sýna fram á mikilvægi þess að hreyfa sig og viðhalda styrk beina og vöðva, jafnvægi og almennrar hreysti þar sem það eykur lífsgæði og bætir lífi við árin.
Frábær félagsskapur og heitt á könnunni eftir tímann.
Tímar:
60+ Þriðjudag og föstudag kl. 09:10
60+ Þriðjudag og föstudag kl. 10:10
70+ Þriðjudag og föstudag kl. 11:10
Kennarar: Anný og Elma
Verð:
- 7 vikur: 21.000kr
- 14 vikur: 36.000kr
10% afsláttur fyrir ellilífeyrisþega.
Næstu námskeið hefjast 8.september. Skráning í síma 462 7111 eða í netfanginu bjarg@bjarg.is